<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Feb 19, 2005
Idol blues

Það er meira hvað ég er orðin mikill Idol aðdáandi allt í einu, en þetta er alveg magnað sjónvarpsefni! Það er eitthvað við hana Ylfu sem greip mig, var bara alltaf spennt að heyra í henni og fannst flutningur hennar á laginu "When a man loves a woman" alveg æðislegur. En nú er hún dottin út og Helgi Þór líka sem ég fílaði í botn og þá er fátt eitt eftir sem er spennandi. Kannski Davíð Þór, finnst bara meira gaman af þeim sem koma á óvart, þessar prófessional týpur eru svo fyrirséðar og alltaf eins.

Annars eru annarsamir dagar í ömmuhlutverkinu að baki því litli kúturinn fór hálskirtlatöku á fimmtudag og amma passaði hann fyrstu tvo dagana, grey skinnið var ósköp aumur en duglegur. Mamma hans er í nýrri vinnu, sér um blómadreifingu hjá SamaSem og hefur meira en nóg að gera þegar konudagur er framundan. Nú er hann hjá pabba sínum í góðu yfirlæti og lætur dekra við sig.

Við Kalli erum að fara á árshátíð hjá skokkhópnum í kvöld og erum að gramsa í fataskápnum hans Kalla, meira hvað hann er alltaf lengi að kveikja á perunni. Ég er löngu búin að redda mér árshátíðardressi á útsölum, en hann keypti sér veiðistöng í staðinn!

Posted at 03:11 am by sigrunae
Make a comment  

Feb 14, 2005
Bara að fikta!

Sit hér við tölvuna að fikta! Er orðin þreytt á því að fylla út atvinnuumsóknir á vefnum út um allt og til í smá fikt!! Rakst á linkinn á þennan blogg-vef og líst bara vel á. Gaman að prufa þetta, tek eftir einu hérna, það er hægt að setja myndir inn beint af tölvunni, bara snilld! Testaði þetta með þessari fallegu "englamynd" af Kalla litla þegar hann var að lúlla hjá afa og ömmu.

Kallli litli að lúlla hjá ömmuog afa


Posted at 06:13 am by sigrunae
Comment (1)